November 2010

Margir koma að ritlistinni

Þó að einungis sé einn fastráðinn kennari í ritlist, sá sem hér skrifar, er ekki þar með sagt að hann sé allt í öllu. Margir aðrir leggja þar hönd á plóg. Meðal þeirra sem stýrt hafa ritsmiðjum síðan ritlist var gerð að aðalgrein til BA-prófs eru  Sigurður Pálsson, Anna Heiða Pálsdóttir, Jason Rotstein, Árni Óli […]

Margir koma að ritlistinni Read More »

Kristín Helga talar um Fíusól og fleira

Mánudaginn 22. nóvember fer fram síðasti fyrirlestur ársins í röðinni „Hvernig verður bók til?“ Þá stígur Kristín Helga Gunnarsdóttir í pontu en undanfarin ár hefur hún verið einn vinsælasti og afkastamesti rithöfundur Íslands. Hún hefur fengið fjölda verðlauna fyrir skrif sín, m.a. verðlaun Vestnorræna ráðsins. Kristín Helga hyggst fara með okkur í yfirreið um svæðið

Kristín Helga talar um Fíusól og fleira Read More »

Stopp! – Ljóðasýning ritlistarnema

STOPP! Ljóðasýning ritlistarnema við Háskóla Íslands verður opnuð á  neðri hæð Háskólatorgs föstudaginn 12. nóvember kl. 17.30. Til sýnis verða tuttugu og sjö ljóð eftir tíu nemendur. Ljóðskáldin eru Tumi Ferrer, Hlín Ólafsdóttir, Vilhjálmur Pétursson, Gunnar Jónsson, Dagbjört Vésteinsdóttir, Birna Dís Eiðsdóttir, Steinunn María Halldórsdóttir, Finnbogi Þorkell Jónsson, Anna Steinunn Ágústsdóttir og Hertha Richardt Úlfarsdóttir.

Stopp! – Ljóðasýning ritlistarnema Read More »

Kristján Már Gunnarsson hlýtur verðlaun fyrir stuttmyndahandrit

Nýlega efndu Ljósvakaljóð til samkeppni um besta stuttmyndahandritið. Tuttugu og þrjú handrit bárust og hlutskarpastur varð Kristján Már Gunnarsson ritlistarnemi fyrir handritið Blóðdögg. Hlaut hann kr. 20.000 í verðlaun. Ég óska Kristjáni Má til hamingju með verðlaunin. Þess má geta að nú á haustmisseri er einmitt verið að kenna kvikmyndahandritsgerð á vegum ritlistar. Þar leiðbeina

Kristján Már Gunnarsson hlýtur verðlaun fyrir stuttmyndahandrit Read More »